Aðalvalmynd

Auglýsing

Gagnasafn

Úr sveitasælunni!Sigurveig Magnúsdóttir

Jæja kannski kominn tími á blogg.... annars er aldrei að vita nema ég fari nú að hætta þessu! Nýtt ár að koma og svoleiðis. Er búin að borða alveg ofsalega mikið og fitna eftir því, ætli ég velti ekki héðan úr foreldrahúsum að veru lokinni! Fékk fullt af fallegum gjöfum og jólakortum, takk fyrir mig, annars gleymdi ég jólakortum sem áttu að berast til bæjarbúa, þar sem ég hljóp í flug, hélt að ég ætti að fara með seinna fluginu á aðfangadag, en ákvað nú að athuga málið. Átti svo að fara með fyrra fluginu þegar ég náði loksins í gegn og átti þá eftir að klæða mig og klára að pakka niður föt sem voru á snúrunni. Varð svo seinust til að tékka mig inn í flugið og seinust til að fara um borð. Varð svo hræðilega flughrædd og hljóðaði upp yfir mig af hræðslu. Konan fyrir framan mig vorkenndi mér svo að hún teigði sig aftur fyrir með hendina og hélt í hendina á mér í aðfluginu. Ekkert smá næs kona. Jæja ég komst nú heil á húfi á aðfangadag, en sömu sögu er ekki að segja frá litla 9 ára gömlum frænda mínum sem liggur þungt haldinn á gjörgæslu í Fossvogi. En hann drukknaði í jólabaðinu, var hann endurlífgaður og kom í gegnum bráðamóttöku barna! segi nú bara eins og er.... ég heppin að hafa ekki verið að vinna!
Ég sendi baráttukveðjur og hvet ykkur til að biðja fyrir honum og fjölskyldu hans.
Verð þó að vinna um áramótin um nótt, eða 30.des, 31.des og 1.jan. Vonum að það verði bara rólegt og börnin sleppi því að fara sér að voða eða verða mikið lasin.

Nýársheit: uhm... hreyfa mig meira, vera félagslyndari, hafa meira samband við ættingja mína og fara oftar í heimsóknir.
ætla að hafa þetta gott
Kveðja Sigurveig

Jólin koma.....Sigurveig Magnúsdóttir

Jæja nú fer að styttast í jólin! Ætla ekki að hafa þetta langt, þar sem ég er með svo mikla sinaskeiðabólgu. Trúlega vegna þess að ég næ ekki að hvíla hendurnar á milli. Kuldinn eða eitthvað álíka, er líka með vöðvabólgu dauðans. En, það fer að styttast í jólafrí. Nú fæ ég ss. frí frá 24.des til 30 des. Svo 28 janúar fer ég til austurríkis á skíði með familíunni hans Árna. Eh tímann þarna í millitíðinni á ég víst afmæli. Verð 26 ára gömul. Á ég að halda upp á það eða ekki?

Hef verið mjög dugleg að vinna, tók 12 klst aukavakt um nótt um seinustu helgi, er eiginlega farin að gera ráð fyrir því að hringt sé í mig um fríhelgar mínar, en ég er að vinna þriðju hverju helgi. Annars er ég að græða ágætlega á þessu aukavöktum auk 50% næturvinnu. En ég held að líkami minn segir annað. Má ekki brenna út fyrir 30 ára aldurinn ;) En hann nálgast víst óðfluga... hehe

Hvað er með öll þessi dauðaslys? Ég þekki engann af þessu fólki en það er nú bara heppni. 29 slys á árinu og voru 19 í fyrra. Ég vil bara biðja ykkur sem lesið þetta að í guðanna bænum fara varlega! Ég hef tekið eftir að ungir strákar hérna í RVK eru sko ekki að keyra eftir aðstæðum. Ég styð heilshugar að breyting verði á bílprófsaldrinum!


Jæja nú get ég ekki skrifað meira.... sökum aldurs.. hehe nei er nú ennþá bara 25 ára...

Kvitta nú


Kveðja Sigurveig með sinaskeiðabólgu

Næturvakt nr. 2Sigurveig Magnúsdóttir

Það er með þessar blessuðu næturvaktir sem ég er á, þær koma í þrjár í röð og nú er næturvakt ss. nr. 2. Ekki er hægt að horfa á sjónvarpið og ég ætlaði nú ekki að nenna að blogga en.... here we go, var meira að segja að spá í að hætta þessu, þar sem ég A: nenni ekki að blogga þegar ekkert er í gangi hjá mér. ekki heldur þegar eh er í gangi og hægt er að segja frá.
B: tölvan mín er með stæla
C: ah alveg tóm.

Jæja, af mér er annars að frétta það, að parket er komið á gólfið. Næst á dagskrá er eldhúsið, sem er búið að vera vægast sagt í messi. Við eigum eftir að velja flísarnar, en erum með ákveðnar hugmyndir. Búið er að steypa snilldarvel upp í gat sem við vorum búin að gera í vegginn sem liggur að eldhúsinu til að búa til meira pláss. Nú á að pússa, grunna og sparsla og þá á þetta að verða flott. Við erum líka búin að ákveða hvernig eldhúsið verður niðurraðað. Það tók nú ansi langan tíma, þar sem ég pældi í þessu fram og til baka. Vinnufélagarnir mínir eru farnir að spyrja hvernig gangi með eldhúsið, þar sem ég hef verið að fá feedback frá þeim í þessum skipulagsmálum. Innréttingin kemur svo frá ikea ægilega flott.

 
Jamm, prjónaskapurinn gengur voða flott, byrjaði nefnilega að prjóna teppi þar sem ég er í saumaklúbb sem er actually eh gert. En líka borðað og talað..... Það fylgir annars væri ekkert gaman af þessu. Já ég hef ekki tölu á hversu oft ég hef rakið upp. En nú gengur þetta. Fékk Guðbjörgu til að sýna mér hvernig ég geri næsta munstur. Annars hef ég verið að læra þetta bara as I go along. Var löngu búin að gleyma þessu. Ekki alveg eins klár og hún systir mín, eða mamma. sem geta töfrað fram peysurnar á no time!!


Ætla austur um jólin, en verð þess í stað að vinna öll áramótin 3 næturvaktir, sem ég reyndar raðaði mér á til að fá pottþétt frí öll jólin. þannig að uhm ég hlakka svo til. Núna loksins fæ ég almennileg jól, langan tíma til að hlakka til og er meira segja búin að kaupa fyrstu jólagjöfina. Já og nú get ég eytt eh pening í jólagjafirnar sem ég gef. Jamm og skrifa jólakort Óákveðinn. Nú fellur nefnilega jólagleðin ekki niður í neinum próflestri eins og hefur get undanfarin 4 ár!!

Uhm, loksins þegar ég byrja á þessu bloggeríi mínu þá get ég bara ekki hætt. skondið.
Já segja frá ruglinu með svefninn.... alveg rétt. Núna nýverið tók ég 6 næturvaktir á 2 vikum og eftir það fór svefninn á nóttunum þegar ég var í fríi í algjört rugl. Ég ss vaknaði þegar ég átti að vera sofandi nota bene klukkan 3 um nóttina og gat ekki sofnað aftur fyrr en klukkan 7-8 á morgnanna!! Trúið mér ég reyndi bókstaflega allt. Held samt að þetta sé að lagast. annars mun ég hætta þessu næturvakta rugli 50% næturvinna er ekki fyrir hvern sem er.

Jæja, læt þetta nægja í bili, reyni að vera duglegri að blogga.

Kveðja Sigurveig ofurbloggari með meiru!

NæturvaktirSigurveig Magnúsdóttir

Er núna á minni þriðju næturvakt og gæti ekki verið meira vakandi. Eitt barn liggur inni í obsi og það þarf ekkert að sinna því. Stundum er þá hægt að gleyma sér í sófanum en ég er bara hreint ekkert þreytt. Til að láta tímann líða hef ég verið á ikea.is endalaust að láta mig dreyma og skipuleggja. Mundi þá skyndilega eftir því að ég átti eftir að blogga. Ferðasöguna. Þannig að here it goes.

Við Árni vorum sem sagt í heimsókn til Victoriu og fjölskyldu sem eiga heima á Rota, suður spáni. Hitinn þar var að meðaltali 40°C og aðeins einn dag ringdi. Ég kom heim með smá lit, en ekki eins og ég hefði verið að koma frá Spáni. En sannleikanum samkvæmt þá var ekki hægt að vera úti í sólbaði lengur en 10 mín í senn. Árni var þó þrautseigari í sólböðuninni. Enda var hann ekki í því að brenna eins og ungfrú rauðhærð. Ég fékk ansi margar freknur sem virðast ekkert fara. 

Einn daginn fórum við (Ég, Árni, Victoria, Jeff, Mathew, Kimberly, Wendy og Trinity) til Jerez de la frontera í dýragarð. Hitinn var þá 42°C og heiðskýrt. Lítið var af fólki í dýragarðinum sökum hita býst ég við.  Hins vegar var fullt af dýrum sem maður vorkenndi hrikalega að húka í litlum búrum í steikjandi hita. Dýr eiga að vera frjáls finnst mér. Það er kannski ekkert að marka mig sem vorkenni innikisum fyrir að þurfa að húka inni. En allaveganna klukkan 19 var ennþá alveg steikjandi hiti. Mikið var tekið af myndum sem ég reyni að koma á netið bráðum.

Við Árni vorum annars voðalega mikið bara að eyða smá tíma saman, með Victoriu og fjölskyldu. Kimberly sem er eins og hálfs árs var eins og tasmanian devil. Hrikalega fljót í förum og alltaf að gera eh sem hún mátti ekki. Þegar hún var svo skömmuð tók hún trompkast og öskraði. Henni fannst skemmtilegast að sulla í litlu sundlauginni sinni og t.d. tók hún bangsann sinn og baðaði hann. Eða fór ofan í hana í öllum fötunum. Ótrúlega lítil sæt óþekk stelpa. Hún var hrikalega hrifin af Árna og stundum knúsaði hún hann alveg heillengi. Var alveg sátt við að vera bara með honum eh að fíflast. Kimberly var annars mjög málglöð, talaði og talaði en enginn skildi neitt. Svo varð hún alveg ofsalega pirruð yfir að enginn skildi hvað hún var að segja.

Jæja nú komið nóg í bili. Segi frá Maroccoferðinni næst

Kveðja Sigurveig sem er á næturvöktum.
Er ss. búin að ráða mig í 50% næturvaktir, til að fá meiri peninga.

Haustið að koma og enginn skóli!!Sigurveig Magnúsdóttir

Jæja gott fólk, mér til málsbótar var ég fyrir það fyrsta búin að gleyma lykilorðinu á þessa síðu. Síðan mundi það loksins og var búin að blogga rosalega mikið, dettur tölvan mín út!! Þið getið ímyndað ykkur svekkelsið.
En vegna ítrekaðra áskoranna þá verð ég að blogga eh um ferðalagið mitt og Árna til Spánar.

Ferðin til og frá var ansi skrautleg, byrja þá á þegar við ætluðum að fara til útlanda þá var planið að fara fyrst til Finnlands og þaðan til Spánar. Var búið að fjárfesta í helming ferðarinnar og þurfti síðan að breyta, með tilheyrandi kostnaði þar sem við gátum ekki komist til Finnlands vegna brúðkaups. Jæja degi fyrir brottför ákveð ég eftir símtal við Victoriu sem við ætluðum að heimsækja, að ferðin væri alltof stutt og vildum  ég og Árni vera lengur en 4 daga. Því að langt er að fara frá Alicante og til Rota þar sem Victoria og fjölsk búa. Degi fyrir brottför fór ég upp í vinnu og þurfti að fá frí 4 vaktir til að geta verið viku í viðbót á Spáni. Vaktirnar voru mv/nv, nv og auka nv sem ég hafði skráð mig. Frekar vonlaust mál með lítið af starfsfólki sem gat skipt við mig. En hafðist. Þá var fluginu breytt aftur með tilheyrandi kostnaði.
Flugið: flogið var frá Keflavík til Alicante og við lentum klukkan 23 að staðartíma. innritun í næsta flug var ekki fyrr en klukkan 6 um morgunin! Þannig að við skötuhjúin þurftum að gista á flugvellinum þar sem ekki tók því að fara á hótel. Árni svaf á gólfinu og ég svaf á stálbekk sem hallaði og ekki var nokkur leið að koma sér fyrir. En við sváfum kannski í klukkutíma alla nóttina. Síðan tók við innritun í flug til Madrid og þar áttum við að skipta yfir í flug til Jerez de la Frontera. Þar tók á móti okkur Jeff sem er maðurinn hennar Victoriu.  Vorum við áberandi hvít á þessum flugvelli. uhm sem á hinum flugvöllunum tveimur. Jeff keyrði okkur svo til Rota frá Jerez. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar við Victoria hittumst. Kimberly sem er orðin 16 mánaða var nú soldið feimin en ég sá hana þegar hún var nýfædd og þær fluttu til Spánar þegar Kimberly var 6 mánaða gömul. Litli Mathew sem var 1 mánaða þegar við komum bræddi okkur alveg! Byrjaður að brosa og hjala. Victoria og ég erum hins vegar búnar að vera vinkonur síðan áður en ég byrjaði í hjúkrun. Bjuggum saman í 1 ár á Hringbrautinni í sitthvoru herberginu. Ég er svo guðmóðir Kimberly.
Æ ég sakna þeirra nú þegar! Veit ekki hvenær ég sé þau næst.Hissa

Ferðin frá Rota var skrautlegri. Við nenntum nú ekki að gista aftur á Alicante flugvellinum. Þar sem við töldum að flugið ætti að vera klukkan 16. En það var ekki fyrr en um kl. 23. Við fórum á ferðaskrifstofu daginn fyrir brottför en við  höfðum pantað bíl deginum áður. Þarna ætluðum við að ná í hann og síðan keyra til Alicante en það tekur um 7 klst. Bara eins og að fara til Fáskrúðsfjarðar. ;) En um miðja nótt. En bílarnir sem voru í boði deginum áður voru allt í einu ekki í boði og of seint var að panta flug. Athugaðar voru lestir en það gekk ekki upp. Þar sem ein lest var farin þegar næsta átti að koma. Þannig að við urðum að taka rútur. Fyrsta rútan fór frá Rota og keyrði til Sevilla og átti hún að leggja af stað eftir 2 klst. Þannig að við heim til að pakka saman. Í Sevilla gátum við svo stoppað í 2klst og fengum við okkur að borða eftir leigubílaferð í gegnum borgina, þar sem seinni rútan fór frá annarri rútustöð í Sevilla. Seinni rútan fór frá Sevilla til Alicante með nokkrum stoppum. Hún lagði af stað klukkan 23 og kom ekki fyrr en átta um morguninn. Mjög erfitt er að sofa í rútu en við fundum 2 auka sæti og ég gat dreift úr mér þar. Kemur sér stundum vel að vera lítill!!

Jæja læt þetta nóg að sinni. Þeir sem vilja framhald af sögunni verða commenta! ;)

Eftir er heill dagur í Alicante
Ein ferð sem við fórum til Marocco
Fórum í dýragarð.
Stelpuferð á djammið.
ofl.

Sumarið....Sigurveig Magnúsdóttir

Úff ég veit eiginlega ekki á hverju ég ætti að byrja. Uhm jú ligg veik heima og er búin að vera það undanfarna 3 daga, ekki skemmtilegt. Mér finnst ömurlegt að hringja mig inn veika, þar sem ég veit að mönnunin er ekki góð. En svona er lífið. Fékk pestina í láni frá Suvy vinkonu minni frá Finnlandi. En hún og vinkona hennar komu til mín og voru í viku. Ég og Suvy kynntumst seinasta sumar þegar ég var að vinna í Stockholm og leigðum við saman í 2 mánuði. Ætli ég sé ekki bara soldið eftir mig eftir þá heimsókn. Jimin eini, hvað var gaman hjá okkur. Ég sýndi þeim gullna hringinn, fórum í bláa lónið og í sund. kíktum á eh fossa, tjölduðum á þingvöllum og kíktum a laugarvatn. Kíktum í Perluna, versluðum svo á útsölunum í Smáralind og Kringlunni. Og ekki má gleyma þriggja daga djammi. Ég fer nú afar sjaldan á djammið en um þessa verslunarmannahelgi var farið föstudag, laugardag, og sunnudag og festað fram eftir morgni eða þangað til allt lokaði og þá skriðið upp í rúm. Drykkjarföngin voru finnlenskur vodki og brugðið var á það ráð að taka hann með í bæinn þar sem drykkirnir voru svo dýrir hérna á íslandi. Þær stúlkur komu með 9 lítra til landsins og fóru held ég með 1 L heim. svo duglegar vorum við, plús ciderar, en ég drakk bjór. Svo hlustuðum við á finnska og sænska tónlist til skiptis, en hvernig sem á því stóð var erfitt að fá fólk í partý, kannski að 2 klst. fyrirvari hafi verið of lítill. :)
Ég kenndi þeim að segja hluti eins og já takk, nei takk, typpi, píka, má ég fá mat, kannski, ekki,  andskotans, takk fyrir, bless bless og einhvernvegin tókst þeim að setja þetta saman og vakti mikla undrun og kátínu fólks á djamminu: Nei takk ég vil ekki typpi!!
Þær kenndu mér líka á móti og eh dónaleg orð sem ég sagði hátt og skýrt og enginn skildi. 
Við vorum sammála því að ég kem næsta sumar til Finnlands og stoppa í 1 og hálfa viku. Þær voru eiginlega hálfsorgmæddar yfir því að vera að fara, en ánægðar með að fara í sólina 25-30°C í Finnlandi núna og fengu þær eiginlega bara rigningu hérna á Íslandi. Það er víst það heitt í Finnlandi að grasið er hálfbrunnið.

Við höfum nóga rigningu hérna á Íslandi til að gefa þeim er það ekki??

Jæja, STÓRT KNÚS fær Anna mín og Örvar, Til hamingju með draumaprinsinn. Vildi óska þess að þið færuð ekkert í burtu. En ég má vonandi heimsækja ykkur til Noregs? 

Siggi stjúpbróðir er í Noregi líka


Begga í Danmörku


Suvy og Tiina í Finnlandi


Sigga í Svíþjóð auk ættfólks míns

Þannig að ég get ferðast eh á næstunni. En stefnt er að ferð til Spánar til Victoriu vinkonu minnar og fjölskyldu hennar 28. ágúst- 3 sept.
Núna loksins fær maður eh pening, þó að mest af því fari nú í skuldir sem maður er búinn að safna sér...

Úff ég held að ég sé búin að setja met hvað lengd varðar á bloggi, en ég er jú að bæta fyrir bloggleysi,

Commenta svo

Hilsen Sigurveig með útþrá

Íbúðastreð.Sigurveig Magnúsdóttir

Jæja, hvernig á maður eiginlega að byrja blogg? Komiði sæl öll sömul... eða ... uhm já. Það sem er af mér að frétta er að ég kemst ekki á franska daga sem eru um næstu helgi. Það hryggir mig að komast ekki sökum vinnu og bágrar fjárhagsstöðu. En Franskir dagar eru the thing ef maður er frá Fáskrúðsfirði eða bjó þar einu sinni. Ég vona að allir skemmti sér tvöfalt fyrir mig þá.

Varðandi íbúðina þá er allt mettað af ryki og drullu vegna þess að við erum skötuhjúin að brjóta niður vegg. Sem er meira en að segja það! Héldum að það færi minni vinna í það. svo þarf að steypa í sárið á eftir. Vitum ekki hvort hægt verði að klára það áður en Stelpurnar frá Finnlandi koma eða 1. ágúst. Stórefa það. Mér finnst það rosalega leiðinlegt að bjóða þeim gistingu og allt er í rúst. Parket er þó komið inn í stofu og lærdómssetrið og þá er eftir svefnherbergið og forstofan. Allt dótið er í svefnherberginu og þá þarf að tæma það í lærdómssetrið eða í stofuna til að hægt sé að parketleggja þar. Í dag var ég svo að rífa niður skáp sem snýr að veggnum sem verið er að rífa. Ég veit að íbúðin verður ótrúlega flott þegar allt er búið. En tíminn fram að því er lengi að líða.

Varðandi vinnuna þá er orðið skemmtilegra að vera orðin vanari og geta gert hluti sem þarf að gera í staðin fyrir að horfa á þá gerða. Það er því orðið skemmtilegra að vera í vinnunni. En ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki hrifin af 12 klst vöktum sem eru um helgar og ná frá 8-20 eða 20-8. Svo eru 2 frábærar hjúkkur að fara hætta í haust og það verður ekki gaman. Það verður því að ráða fleiri hjúkkur! Eru eh á lausu og vilja vinna á bráðamóttöku barna??

Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meira.

Þar til næst.

Sigurveig

Flutningur og fleiraSigurveig Magnúsdóttir

Haldiði að kellan sé ekki búin að finna sér nýja líkamsrækt..... kostar ekki neitt Saklaus En það er nefnileg mjög fjölþætt, byrjaði á flutningum sem fóru í sér margar ferðir frá íbúð og í bíl. Þurftum bara að fara eina ferð, því við fengum sendiferðabíl. og úr bíl og upp á 2. hæð. Síðan þurfti að þrífa íbúðina mína út og inn. þrífa, skrúbba og henda. Þegar ég var svo endanlega flutt hefur tekið við að mála og þrif. Uhum, það hefur aldrei verið þrifið á Snorrabrautinni. Mengun smígur inn og skítur er alls staðar. Það er búið að rífa af gólfunum og ég get ekki komið mér fyrir. Það er því allt í kössum og ég finn aldrei neitt. Get til dæmis ekki notað nýja fína símann minn sem ég fékk í útskriftargjöf vegna þess að ég finn ekki hleðslutækið mitt. Jamm og svo fæ ég að rífa út eldhúsinnréttinguna...... mér finnst hún ekki heillandi. Málað kúkabrúnt og barna skítabrúnt í kringum hurðarnar. Já þið þyrftuð eiginlega að fá visual. Þegar ég er ekki að skrúbba þá er ég í vinnunni. Það er nú ekki alslæmt með að vera flutt. uhm gleymdi að segja að ég fékk ekkert að sofa í nótt... já það var partý á 2 hæðum fyrir ofan mig og minn mann. Þið spyrjið þá afhverju fór ég ekki í partýið..... já, íhugaði það um miðnætti eftir vinnu en sá að það var nú ekki gáfulegt þar sem ég þurfti að fara í vinnuna daginn eftir. Fór því að sofa um klukkan 2 og þurfti að vakna klukkan 7:20. Hér er ég á Bráðamóttökunni, með bauga undir augunum, svaka fín. Svo eftir vinnu liggur leiðin í byko til að leigja tæki og svo á að rífa meira af dúkum svo hægt sé að leggja parket í hreiðrið. Já ég talaði um ekki alslæmt... en það góða er að ég fæ að vera með Árna mínum meira.

Nýtt blogg, vinnaSigurveig Magnúsdóttir

Komiði sæl og velkomin á nýju síðuna mína! ´

Jæja, ég ætti nú að hafa nógan tíma til að blogga núna, því að ég er í vinnunni og það er nákvæmlega ekkert að gera! Engin börn, ekki neitt. Í gær sat ég á rassinum í 2 1/2 tíma í tölvunni. Maður er viðbúinn öllu samt. Hefur hálfpartinn samviskubit yfir því að vera ekki að gera neitt. Sem er vegna þess að næturvaktin fyllir á allt og vaktirnar eru langar og ekki endalaust hægt að þrífa, enda er ég ekki ráðin til þess. Er ekki að fýla þessar 12 tíma vaktir sem nauðsynlegt er að taka ef ég vil fá að vinna bara þriðju hverja helgi. Vaktirnar ná sem sagt frá 8 á morgnanna til 8 á kvöldin og þá er ekki mikil orka til að gera nokkurn skapaðan hlut.
Ég stend þó í flutningum þessa dagana og allur frítími fer í að pakka niður og frítími Árna fer í að pússa veggi og mála. Það er því ekki mikill tími sem fer í afslöppun.

Útskriftin...... Var æðisleg, hefði ekki getað óskað mér betri veislu, takk fyrir að hjálpa mér Eva. Útskriftargjafirnar voru heldur ekki af verri endanum. Ég fékk hjúkkuúr, skartgripi, skó, listaverk, fullt af blómum,  pening og eitt stykki folald!! Já ég fékk folald sem var búið af fá nafnið Flórens. Ég hélt nú að það væri eh verið að stríða mér! En svo var ekki, pabbi Árna og stjúpmamma auk barna þeirra gáfu mér folaldið. Þau gerðu svaka flott plagg með mynd af því, sem hafði  Sigurveig Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur á. Mér fannst þetta plagg vera svo flott og ætlaði að ramma það bara inn. En Árni þekkir sína konu og fannst viðbrögðin ekki alveg í samræmi við gjöfina. Þegar ég svo fékk að vita að það væri verið að gefa mér folald vissi ég ekki alveg hvernig ég ætti að haga mér.

Dagurinn var í alla staði yndislegur. Hálpartinn vildi að ég ætti hann eftir. Annars er það bara brúðkaup næst... hehe Ullandi (djók)

Set bráðum inn myndir og laga útlitið á þessarri síðu

En þangað til kveð ég frá Bráðamóttöku barna og vona að þið sýnið smá lit í að kvitta. þó það sé nú bara til að segja hæ!

Kveðja Sigurveig hjúkrunarfræðingur

Leikur dagsins

Teljari